föstudagur, apríl 27, 2007

Mér er illt í hendinni. Hingað kom Þjóðverji áðan sem spurði mig spjörunum úr um íslenskan vinnumarkað og horfurnar í efnhagsmálum. Ánægja hans með þjónustuna kom út á handabandinu í lok hins langa samtals og ég sit sár eftir. Verð að fara að veita verri þjónustu.

Ég er utan að landi og fer svosem ekki í felur með það. Áðan hneykslaði ég alla í vinnunni með því að segja að ég hefði leitað að og reyndar fundið Heiðmörk um daginn. Fyrir þann tíma hafði ég barasta aldrei komið í þessa útivistarparadís höfuðborgarbúa og bara haft óljósa hugmynd um staðsetningu hennar. Ég svaraði fyrir mig og spurði hversu margir rötuðu í Kálfshamarsvík sem er fallegur staður rétt utan við Ströndina. Engin vissi það. En reyndar hefur ekkert þeirra búið í einhver 4-5 ár á Skagaströnd eða í nágrenninu.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

bara að kvitta fyrir mig! Vona að allt gangi vel! og svo hef ég gist á 30. hæð á sas hótelinu í Osló sem þú minntist á í gamalli færslu- þvílíkar hellur sem maður fékk alltaf í lyftunni!
Bestu kveðjur frá London

12:06 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er búin að búa í borginni nú á sjöunda ár og hef enn ekki gerst svo fræg að leita að og finna Heiðmörkina. Það er samt á núverandi sumarplani!!
kv. Erla María

10:25 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home