mánudagur, desember 04, 2006

Fékk hland fyrir mitt litla, níska hjarta í morgun. Pantaði mér nefnilega flug, til og frá Akureyri aðra helgi og frá Akureyri til Reykjavíkur 2. janúar. Þetta kostaði rúmlega 20 þús. svo það er eins gott að það verði gaman um jólin. Fæ annars heila 10 daga í jólafrí sem ég ætla að skipta bróðurlega á milli Skagastrandar og Akureyrar. Geri nefnilega fastalega ráð fyrir að allir vilji fá mig og hafa mig sem allra lengst enda með afbrigðum skemmtileg.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

þú ert nísk Þóra mín en ekki nýsk!!!!

9:54 e.h.  
Blogger Þóra said...

Jesús, já, það er nísk auðvitað ekki nýsk. Skammast mín alveg niður í tær.
En það hefur nú löngum þótt góður siður að kynna sig þegar komið er í heimsókn!!!

8:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Æ, ekki vera svona fúl, þetta var nú bara mamma gamla:/

6:23 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home