miðvikudagur, september 27, 2006



Hér er svo litli prinsinn, hann er nú meira í föðurættina finnst mér. En hann sver sig nú einnig í móðurættina þar sem hann er þriðji afkomandi systkinanna frá Jaðri sem fæddur er þennan dag, 27. september-og allt eru þetta strákar.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Æjjji hvað hann er sætur!! Innilega til hamingju með frænda Þóra mín! Bið að heilsa pabba, mömmu, Birnu, Sindra og Tönju:) Vonandi hittumst við fljótlega..Það mætti halda að við værum stödd í sitthvorri heimsálfunni..huhumm!!

11:02 f.h.  
Blogger Helga said...

Hæ,
innilega til hamingju. Hann er æðislegur. Bið að heilsa.

3:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju frænka, hann er flottur :)
Bið kærlega að heilsa Birnu og fjölskyldunni, vona að öllum heilsist vel. Kveðja, Þóra.

4:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ kæra frænka.
Hamingjuóskir með litla kútinn, rosalega er hann flottur. Þú knúsar hann frá mér þegar þú hittir hann.
Kveðjur frá Ísafirði,
Didda.

5:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju með litla sæta frænda. Þú kyssir hann og systurina frá mér þegar þú hittir þau. Hér er allt með kyrrum kjörum, en eins og þú væntanlega veist er von á erfingja hjá mér þann 1. nóv. - stelpu. Mér líður ágætlega en er byrjuð að minnka við mig vinnu og svona. :-)

11:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til ham.

3:01 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home